Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Náttúruprjón

Gimli, vettlingar - gjafapakkar, dömu- eða herrastærð

Gimli, vettlingar - gjafapakkar, dömu- eða herrastærð

Venjulegt verð 7.325 ISK
Venjulegt verð Söluverð 7.325 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Gjafapakki með handlituðu garni og uppskrift Náttúruprjóns, tileinkað sögu Íslands.

Þessir vettlingar eru til heiðurs þeim Íslendingum sem fluttu til Vesturheims fyrir aldarmótin 1900 og þurfu að læra nýja búhætti og lifa við allt önnur veðurskilyrði en þau voru vön að lifa við.

Vil taka fram að það er sitthvort mynstrið á hægri og vinstri vettling, svo húsin speglist og saman myndi handbökin litla þyrpingu húsa😊.

Hefðbundið tvíbanda vettlinga prjón með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er óreglulegt. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við.

Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja, prjónar eru ekki innifaldir. Garnið er 85% merinó ull / 15% nælon, yndislegt að prjóna úr.

Prjónar nr 3 og 3,5.

Skoða allar upplýsingar