Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Náttúruprjón

Fjögurra blaða smári, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Fjögurra blaða smári, húfa og vettlingar - gjafapakkar

Venjulegt verð 6.990 ISK
Venjulegt verð Söluverð 6.990 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Tegund
Tungumál

Gjafapakki með handlituðu garni og uppskrift Náttúruprjóns.

Ætlaði mér að búa til allt öðruvísi mynstur en einhvernveginn endaði uppskriftin svona, skemmtilegt að prjóna og fallegt mynstur, ég held jafnframt að þetta sé auðveldasta uppskriftin til að prjóna. Það þarf að passa sig á fyrstu úrtökunni, þar sem hún snýr öfugt miðað við hinar.

Hefðbundið tvíbanda húfu og/eða vettlinga prjón með lettneskri fléttu og einföldu stroffi. Mynstrið er reglulegt og auðvelt. Löng bönd myndast einungis á fáum stöðum, sem hægt er að festa í þriðju hverri lykkju á bak við.

Góðar leiðbeiningar ásamt slóðum á skýringamyndbönd fylgja, prjónar eru ekki innifaldir. Garnið er 85% merinó ull / 15% nælon, yndislegt að prjóna úr.

Prjónar nr 3 og 3,5.

Skoða allar upplýsingar